Í dag er fyrsti vordagurinn á þessu ári samkvæmt dönsku dagatali..
Að sjálfsögðu snjóaði í nótt í tilefni vorkomunnar og var allt hvítt hjá okkur í morgunn.
Það var því ekki "úti" veður í dag og byrjuðum við á að gera við tölvuherbergið eftir leysingarnar um daginn.
Svona leit þetta út nú í kvöld, búinn að setja upp lektur og einangrun. Á morgunn ætla ég svo að byrja að klæða..
Verum í bandi alles...
Búúúúúiiiiiiiiiiiinnnn....
Föstudagur 5 mars 2010
Hæ hó allesammen...
Eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan sem ég tók í dag er búið að ganga vel að gera við tölvuherbergið og er ég nú kominn með mikið betri aðstöðu heldur en ég hafði áður.
Inga kom og þrælaði með okkur í þessu og munaði það öllu fyrir okkur, hún er bráðlagin og ekki feimin við að nota hendurnar.
Nú þarf ég að ráðast á allar Facebook tölvurnar sem hafa safnast upp og bíða hreinsunnar þannig að það verður nóg að gera næstu daga.
Inn á milli véla þarf ég svo að koma mér fyrir í nýju aðstöðunni, það er mesta furða hvað hefur safnast af drasli yfir árin og verður spennandi að reyna koma því öllu fyrir á nýjann máta.
Verum í bandi alles....
Allt gott frá Seattle..
Miðvikudagur 17 mars 2010
Hæ hó allesammen..
Eins og þið vitið þau ykkar sem hafið verið í bandi nýlega þá er Nonni nú staddur í Seattle í USA..
Ég var að fá fréttir frá honum og hefur hann það fínt og hefur ferðin gengið vel.
Í tilefni þess ætla ég að gleðja ykkur með þessari fínu mynd af börnunum..
Verum í bandi..
Verið nú dugleg að smella greyin mín.. Muh ha ha ha ....
Föstudagur 19 mars 2010
Hæ hó allesammen..
Það er kominn föstudagur hér í Tarm og allt gott að frétta héðann..
Lífið gengur sinn vanagang og vorið farið að láta kræla á sér, heldur hlýrra veður og ekki laust við að Vetrargosar og ýmsir undarlegir laukar séu að byrja springa út.
Blessuð Face bókin svíkur mig ekki, ég hef nóg að gera við að hreinsa eftir hana, nýjir vírusar koma reglulega og fólk er svo vitlaust að það smellir á hvað sem er..
Besta mál.. Ha ha.. á einhverju verð ég að lifa ekki satt..
Verum í bandi....
Eldgos lýsir upp skammdegið.....
Mánudagur 22 mars 2010
Hæ hó allesammen..
Gamann að sjá viðbrögðin í gestabókinni við eldgosinu, við Íslendingar erum sennilegasta eina þjóð í heimi sem finnst eldgos skemmtilegur viðburður sem lýsir upp skammdegið...
Ég rakst á þetta fína myndskeið á youtube og læt það hér inn fyrir þau ykkar sem ekki hafið séð myndir af gosinu..
Verum í bandi alles...
Eldgos í Tarm....
Laugardagur 27 mars 2010
Hæ hó allesammen....
Þið eruð ekkert þau einu sem hafið "Eldgos.."
Að vísu er okkar ekki að fjallabaki (frekar erfitt að hafa nokkuð að fjallabaki á Jótlandi) heldur er það hreinlega hér í stofunni hjá okkur..
Skjálftavirkni hefur orðið vart síðustu nætur og gleður mig að segja frá því að ég vonast til að hún aukist í nótt ef eitthvað er....
Sennilega verða þetta gífurleg umbrot...
Annars er ekkert nýtt að frétta héðan, vorið er komið og allt eins og vanalega á þessum árstíma, erum aðeins að byrja á vorverkunum utanhúss og farið að hlakka til fyrstu útilegunnar í vagninum, sæki hann í vetrarhýðið eftir páska..
Klukkan verður færð fram um 1 tíma í nótt þannig að frá og með morgundeginum er 2 tímum styttra til jóla hjá okkur heldur enn hjá ykkur ykkur..