| Búúúúúiiiiiiiiiiiinnnn....
| Föstudagur 5. Mars 2010 |  | Hæ hó allesammen...
Eins og þið sjáið á myndinni hér fyrir ofan sem ég tók í dag er búið að ganga vel að gera við tölvuherbergið og er ég nú kominn með mikið betri aðstöðu heldur en ég hafði áður.
Inga kom og þrælaði með okkur í þessu og munaði það öllu fyrir okkur, hún er bráðlagin og ekki feimin við að nota hendurnar.
Nú þarf ég að ráðast á allar Facebook tölvurnar sem hafa safnast upp og bíða hreinsunnar þannig að það verður nóg að gera næstu daga.
Inn á milli véla þarf ég svo að koma mér fyrir í nýju aðstöðunni, það er mesta furða hvað hefur safnast af drasli yfir árin og verður spennandi að reyna koma því öllu fyrir á nýjann máta.
Verum í bandi alles....
|
| | | Vorverkin....
| Mánudagur 1. Mars 2010 |  | Hæ hó allesammen..
Í dag er fyrsti vordagurinn á þessu ári samkvæmt dönsku dagatali..
Að sjálfsögðu snjóaði í nótt í tilefni vorkomunnar og var allt hvítt hjá okkur í morgunn.
Það var því ekki "úti" veður í dag og byrjuðum við á að gera við tölvuherbergið eftir leysingarnar um daginn.
Svona leit þetta út nú í kvöld, búinn að setja upp lektur og einangrun. Á morgunn ætla ég svo að byrja að klæða..
Verum í bandi alles...
|
| |
|